Hvað er til ráða?

Hvað þarf eiginlega að gerast hérna til þess að stjórnvöld sjái nú sóma sinn í að fara frá? Þarf virkilega að ganga berserksgang og beita ofbeldi til þess að koma skoðunnum sínum á framfæri? Það myndi sjálfsagt ekki duga heldur og gæfi ráðamönnum réttmæta afsökun til þess að kalla fólk skríl og kenna unglingum um allt samann.

Við erum föst milli steins og sleggju. Það er sama hvað gerist það mun enginn sem skiptir máli sgja af sér. 90% þjóðarinnar vill að Davíð Oddsson víki úr seðlabankanum. Hann er ekki að fara að segja af sér, hann mun sitja sem fastast þangað til hann hefur unnið sér inn full lífeyrisréttindi seðlabankastjóra og getur makað sinn krók það sem eftir er. Geir og félagar eru ekki að fara að reka hann þar sem Geir finnst álit 90% íbúa landsins endurspegli ekki endilega vilja þjóðarinnar!?

Þetta er náttúrulega skoðunn sem að gerir Geir kleift að starfa enn sem forsætisráðherra þjóðarinnar, þar sem það er ekki hægt að (samkvæmt honum) að endurspegla vilja þjóðarinnar í skoðannakönnunum, einaleiðinn hlýtur að vera að spyrja hvern einasta landsmann. Og hvað er það sem Geir óttast mest og telur fráleitt að ræða núna? Jú auðvitað kosningar þar sem allur vafi um vilja þjóðarinnar yrði tekinn af.

Ég var að horfa á myndband af viðtali sem að fréttamaðurinn G. Pétur Halldórsson tók við Geir í janúar 2007. http://gpetur.blogspot.com/2008_11_01_archive.html#5663761509597831876 Þetta viðtal er lýsandi fyrir Geir einsog má sjá hann í öllum opnum viðtölum í dag, snýr út úr því sem að hann vill ekki svara og reynir að stjórna viðtalinu sjálfur. Núna virðist hann samt hafa lært að hemja sig (kallar menn bara fífl þegar hann heldur að þeir heyri ekki í sér) og snýr út úr spurningum í hneykslunartón frekar en að missa sig.

Hversu oft hafið þið heyrt orðin "það er ekki til umræðu hér" hrjóta af vöru forsætisráðherra síðustu vikur? Nánast i hverju einasta viðtali er hann spurður spurninga um hluti sem að skipta þjóðina máli en hann vill ekki svara. Ég skal alveg viðurkenna að ég vildi ekki vera í hanns sporum núna, vera forsætisráðherra í ríkisstjórn sem er að reyna að redda málunum eftir að hafa horft aðgerðarlaus uppá allt fara til helvítis. Ég held samt að ég væri maður til þess að viðurkenna mistök mín og sjá að skynsamlegast væri að stíga til hliðar og leyfa einhverjum sem að hefur horft á málin þróast utanfrá að reyna að koma þessu á kjölinn aftur.

Það mun því miður líklega ekki gerast því að hefðin fyrir því að íslenskir ráðamenn sem hafa einhver veruleg völd, segi af sér, er ekki til. Ég er heldur ekki beint að sjá né treysta öðrum augljósum kostum í stöðunni til að leysa málin.

Samkvæmt skoðannakönnunum er stóraukinn vinstrisveifla í samfélaginu (sem að gerist reyndar alltaf þegar hægri menn hafa hrundið að stað einhverkonar efnahagsdýfu) og er ljóst að V-G mundu bæta gríðarlega við sig ef kosið yrði nú. Þó að ég aðhyllist nú frekar vinstri hlið stjórnmálanna þá hef ég litla trú á að vinstri sveifla samfélagsins sé reyst á nokkru öðru en skamsýni og von um að hin augljósa andstæða ný-frjálshyggjunnar geti reddað málunum. V-G gæti tekið við stjórnartaumunum en yrðu að vera ansi duglegir að redda málunum og það mætti flokka það sem kraftaverk ef þeir hefðu ekki misst fylgi sitt í næstu kosningum á eftir.

Samfylkinginn er hluti af vandamálinu í dag og gæti því aldrei orðið hlutlaus hluti af lausninni. Samkvæmt skoðannakönnunum yrðu þau stærsti flokkurinn í dag ef gegnið yrði til kosninga. Meirihluti almennings virðist vera hræddur við að fara of langt frá hægri hliðinni og óttast líklega að vera stimplað sem kommúnistar ef það gerði það og vill því skera skárri hlutann burt af annars ónýtum ávexti og éta hann þó hann sé úldinn. Haldið þið að Ingibjörg og Björgvin G. geti ethvað frekar reddað málunum með einhverjum öðrum í stjórn en sjálfstæðismönnum? Það efast ég um. Töfralausninn Evrópusambandið er það eina sem blífar hjá þeim og allt hitt hlýtur þá að reddast. Við ættum kanski bara að sverja okkur undir Danakonung aftur og hætta þessari vitleysu því það er greinilegt mat þeirra að við getum ekki séð um okkur sjálf.

Frjálslyndir hafa verið duglegir að hlaupa með hvert málið á fætur öðru í fjölmiðla sem að þeir halda að geti skapað þeim vinsældir. Hvar er þeirra stefna um hert eftirlit með útlendingum núna? Það hefur lítið til hennar spurst síðann í síðustu kosningum og býst ég ekki við að heyra neitt um hana í þeim næstu þar sem útlendingar vilja flestir flytja héðann sem fyrst. Frjálslyndir myndu mögulega geta elft alvinnuhætti íslendinga í sjávarútvegi og stóriðju og er það síðara það sem skelfir mig meir. Skamsýnar lausnir eins og fleirri virkjannir og álver eru engar töfralausnir og munu hafa verri langtíma áhrif á ísland en þessi kreppa sem nú gengur yfir landið. Ég er samt viss um að Addi Kiddi Gau var góður skipstjóri á sínum tíma og yrði sjálfsagt ágætis einvaldur en hann er því miður ekki einn í flokknum.

Það tekur því nú varla að eyða púðri á Framsóknarflokkinn þar sem hann hefur ekki haft neinar skoðannir síðustu kjörtímabil nema þær sem að sjálfstæðismenn hafa sagt þeim að hafa. Svo þegar þeir loksins eru ekki í stjórn með sjálfstæðismönnum hvað gerist þá? Upplausn og klofningur því að menn geta ekki komið sér samann um flokksmálin. Nú virðist samt annar hlutinn hafa náð undirtökunum í flokknum og verður spennandi að sjá hvor óöldinni sé lokið. Ég er viss um að sjálfstæðismenn sjá eftir að hafa ekki haft framsókn með sér núna til að ráðskast með að vild. Ráðherra þeirrar ríkisstjórnar hefðu allavega ekki farið að tjá sig um nauðsyn kosninga í fjölmiðlum.

Síðast kaus ég Íslandshreyfinguna vegna umhverfissjónarmiða en ég held því miður að hún sé ekki rétti flokkurinn til að koma okkur úr efnahagsvandanum. Vil samt endilega fá Ómar á þing því þar er maður sem tala með hjartanu.

Sjálfstæðisflokkinn ættu nú allir að þekkja af gjörðum sínum og er ótrúlegt að meiri hluti þjóðarinnar hafi valið þá til að hafa vit fyrir sér svo árum skiptir. Þeir yrðu svo sannarlega lúserar næstu kosninga ef þeim tekst ekki að tefja tímann nógu lengi til að fólk gleymi (eru ekki allir búnir að gleyma framgangi þeirra í borginni í ár?) en það sorglega er að í næstu kosningum á eftir verður hann líklega kominn nálægt sínu gamla fylgi og heldur áfram sínu striki einsog ekkert hafi í skorist.   

Já kæru lesendur (ef þeir eru þá einhverjir eftir) það er nokkuð ljóst að þjóðin er í vanda stödd og það virðist ekki vera nokkur lausn í sjónmáli. Ráðamenn hlusta ekki á fólkið, fólkið lætur vaða yfir sig af gömlum vana og trúir að allt muni reddast, mótmæli eru grín og unglingar í augum fjölmiðla og alltof margra landsmanna og við sitjum uppi með ónýta ríkisstjórn og hugsanlega eftirmenn sem eru að öllum líkindum ekkert mikið skárri.

Nú bíða víst allir eftir að ég komi með lausnina en því miður hef ég hana bara ekki. Kanski væri best að fá hér sprenglærða færeyinga, norðmenn eða araba til að taka við stjórinni tímabundið og rannsaka opinnberlega hvað er búið að vera hér í gangi síðustu ár. Alla laxveiðitúrana, einkaþoturúntanna og embættisveitingar til ættnigja, vina og vandamanna. Ég er hræddur um að þá kæmi uppúr dúrnum að eitt minnst spillta landi í heimi væri líklega með þeim spiltustu.

Munurinn á okkur og öðrum spiltum lönum er bara sá að almenningur lætur allt yfir sig ganaga og gerir ekki mál úr neinu. Hversu oft hefur maður lesið og heyrt um í fjölmiðlum að einhver hafi verið ráðinn í opinbera stöðu og að tengsl séu milli hanns og þeirra sem höfðu eitthvað um málið að segja? Svo kemur alltaf sama tuggan um að ekkert óvenjulegt hafi átt sér stað og fólk gleypir við þvi strax. Fjallað er um málið í 1-2 vikur og svo er allt gleymt. Þetta eru ekki allt tilviljannir og fagleg vinnubrögð. Það bara getur ekki staðist.

Vonandi munu komandi kynslóðir geta skoðað málin í réttu samhengi og spurt: Létuð þið þetta virkilega yfir ykkur ganga? Afhverju var ekki löngu búði að reka Davíð Oddsson og kæra hann fyrir landráð fyrir að koma heilli þjóð á botninn út af persónulegri óvild í garð nokkurra einstaklinga? Voruð þið alger fífl? Svarið er já við erum fífl og líklega aumingjar líka og þess vegna eigum við þetta kanski bara allt saman skilið. Við getum ekki tekið völdinn í okkar hendur, það er bara hver höndinn upp á móti annari (og er ég þar ekki undannskilinn) og við verðum bara að bíða eftir að ESB gangi okkur í föðurstað og skammi okkur þegar við erum á rangri leið.

Þegar Jörgen Jörgensen reyndi að bjarga okkur undann því sem að honum fannst vera óréttlæti Dana, hans eigin þjóðar, þá vildum við það ekki. Við vorum hrædd við breytingar og vildum bara hafa hlutina einsog vanalega. Nú er enginn Jörgen til að bjarga okkur enda myndum við líklega hæða hann og spotta líkt og mótmælin sem að eiga þó að heita sterkasta vopn almennings. Þeir tímar sem að við lifum á nú munu leiða það í ljós hvort okkur sé í raum viðbjargandi. Ég er hræddur um ekki en vona að sjálfögðu að það sé svo.

Tökum málinn í okkar hendur frekar en að lifa í voninni. Skilum auðu þar til einhver sem að uppfillir allar okkar kröfur stígur upp úr öskunni. Virkjum á okkur hausinn og lærum af reynslunni. Þeir sem að eru mest áberandi endurspegla alls ekki íslensku þjóðina í dag.

Burt með ráðamenn.

Inn með fólkið! 


...og losa.

Framtíðarsýn.

Bretar stefna íslendingum fyrir alþjóðadómstólum og saka þá um landráð og óstjórn.
Íslendingar byðja Rússa um efnahagsaðstoð sem þeir fúslega veita.
Bandaríkjamenn taka upp málstað Breta og setja viðskiptaþvingannir á íslendinga.
Rússar byggja eldflauga skotpalla á miðnesheiði.
Árni Johnsen gerður að varnarmálaráðherra Íslands og breytir nafni Vestmannaeyja í Johnsengrad.
Íslendingar flýja á heimagerðum flekum úr rekavið og ál-afgöngum til Ameríku (Grænlands).

Salut.

Panikk!!! Fólk er ekki sammála yfirvöldum!

Þar kom að því að þögnin rofnaði.

Ólgan í íslensku samfélagi er gríðarleg þessa dagana og því ástæða til þess að tjá sig aðeins. Er búinn að vera að fylgjast með fréttaflutiningi af mótmælum dagsins sem að eiga eftir að gera 23.04.08 að eftirminnilegum degi í íslandssögunni. Ég tek það fram að ég var ekki á svæðinu og get því ekki byggt mínar skoðanir nema á viðtölum og fréttafluningi fjölmiðla. 

Að mínu mati fór lögreglan langt yfir strikið í dag og hefur líklega verið að bíða eftir tækifæri til þess að grípa til aðgerða. Hvað voru annars full vígbúnir lögreglumenn að gera þarna uppfrá annað en að búa til andrúmsloft átaka. Bílstjórar voru að flytja burt bíla sína og samkvæmt þeim var aðeins einn bíll eftir sem að var ólöglega lagður. Þegar á svo að færa hann er lögregla búinn að fá nóg og lætur finna fyrir mætti sínum með yfirgangi sem auðveldlega hefði verið hægt að sleppa.

Ef menn hefðu bara fengið að færa bílinn þá hefðu menn líklega getað fengið sér í nefið eftir á og hlegið að öllu samann (Geirjón hlýtur að hafa verið í fríi og neftóbakið því víðsfjarri), en þá hefðu óeirðargræjur lögreglunnar verið ónotaðar, og þeir voru nú búnir að gera þær klárar.

Fréttaflutningur Svanhildar Hólm og kollega hennar var að mér þótti alveg gríðarlega lélegur og hlutdrægur. Þau eru að fjalla þarna um mál þar sem fólk var beitt óþarfa ofbeldi af yfirvöldum (sem að eiga að vermda almennng) og eru brosandi út í annað. Þegar Svanhildur er svo að ræða við Sturlu er eins og hennar markmið sé að reyna að sanna að þessi mótmæli eigi ekki rétt á sér og hneikslast á honum fyrir að kvarta yfir aðgerðum lögreglu. Hluti samtalsins var á þessa leið: "Átt þú ekki börn í skóla?", "Notar þú ekki heilbrigðisþjónustu (eða)?" Sem sagði mér á milli línanna, "Þú átt engann rétt á að fá neitt þar sem þú færð alveg nóg". Þetta þykir mér ekki hlutlaus né skelegur fréttaflutningur og var Kastljósið mun betra þar sem spurningarnar voru ákveðnar en ekki með yfirlætislegum tóni.

Ég ætla ekki að afsaka eða réttlæta grjótkastið í lögreglumanninn sem að lögreglan á sjálfsagt eftir að skýla sér bakvið í umfjöllun um málið, en lögreglan var að bregðast við ástandi sem að þeir sköpuðu sjálfir. Ég hef áður orðið vitni að því þegar lögreglan grípur til úðabrúsans í óðagoti, einsog það sé enginn millivegur frá smá óróa til valdníðslu.

Ég er hræddur um að lögreglumenn hafi nú skapað vettvang fyrir frekari átök með því að taka fyrsta skrefið sjáfir í stað þess að leifa mönnum bara að fara og fá sér kaffi og í nefið. Það má deila um lögbrot bílstjóra en líklega eru enginn brot sem að þeir frömdu þarna sem verðskulduðu þessi viðbrögð.

Ekki láta lögreglu né stjórnvöld halda ykkur niðri í þessu svo kallaða lýðræðisríki og það virðist sannast að ef almenningur stígur aðeins út af sinni vanalegu, yfirvaldssamþykktu braut,  að þá eru við ekki eins frjáls og menn vilja meina. 


Suðurnesja staka

Sagt er að á Suðurnes,

drottinn hafi skitið,

því forljótari útnára

ég hef aldrei augum litið. 

 


Langt um liðið

Heil og sæl og gleðilegt ár.

Reyndar byrjar það ekkert gleðilega fyrir okkur Íslendinga sem að ættu að skammast sín fyrir að draga blásaklausa, sigurvissa góðborgara að sjónvarpsskjánum til að horfa á þá skíta á sig gegn hinum arfaslöku Svíum. Ef að Stafan Olson og Magnus Vislander hefðu verið í Sænska liðinu enþá þá hefðum við tapað með þriggja stafa tölu mun. Það þýðir samt ekki að tuða um þetta meir því það eru líklega um sautjánþúsund aðrar blog síður með sama málefni á sinni dagskrá, þannig að áfram Ísland í næsta leik og ekkert kjaftæði.

Ég sit hér á skólabekk í lok minnar fyrstu skólaviku á nýju ári. Tók öll prófin í síðustu viku og verð að monnta mig af afrakstrinum sem ekki verður leikinn eftir svo glatt. Í ensku fékk ég 8,4 í prófinu en 7,25 í loka einkunn sökum einhverra verkefna sem ekki skiluðu sér og er það öruglega allt byggt á miskilningi eins og vanalega... Í upplýsingatækni varð lokaeinkunn 7,9 með líklegri hækkun uppí 8 en ég fékk 8,4 á prófinu (lækkun má rekja til miskilnings í verkefnaskilum).  Stærðfræðin olli nokkru hugarangri því ég vissi í raun ekkert hvernig mér gekk þrátt fyrir gífurlegan undirbúning fyrir prófið. Útkoman varð svo glæsileg 5,45a en ég veit ekki vetrareinkunnina. Hef þó smá von um að verða hífður uppí 6 sem að væri alveg magnað. Gullkornið sem að prýðir topp mælisins í dag er svo félagsfræðin. Þar náði ég 9,4 í prófinu og er með 9,5 í lokaeinkunn, djöfull var ég ánægður. Íslenskan á svo enn eftir að skila sér en er nokkuð viss um að ég náði henni.

Jæja nú er ég að bíða eftir að hann Bjartur skólafélagi minn drattist til að vera búinn í tíma svo að ég geti fengið far hjá honum í bæinn, burt úr þessari grámyglu suðurnesjanna sem virðist aldrei breytast. Býst við að gera eitthvað skemtilegt um helgina. kanski maður nýti snjóinn eitthvað og fari út að renna, það er alger snilld, horfi á handbolta (sem inniheldur vonandi Íslenskan sigur) eða helli mig fullan. 

Það til næst....... 


Uppgjör

Jæja þá eru nú aðeins nokkrir dagar eftir af þessu blessaða ári og þá er nú klassískt að gera það upp að einhverju leiti. Í heildina litið var þetta bara frábært ár og ætla ég að henda svona topp 5 lista yfi helstu aðtburði ársins.

kanarí 184 Nr. 5 Kanarí

Það er afar gott að smella sér til sólarlanda með famelíunni og var þessi ferð hreinn unaður fyrir utann flugferðina sjálfa. Gott að smella sér í sólina um páskanna og fá að láta eins og fífl í rennibrautagarðinum, éta steikur á hverju kveldi og eltast við Helgu Nínu á sundlaugarbakkanum. Gott ef við skellum okkur ekki bara aftur næstu páska.

 

 

 

Nr. 4  Adrenalíngarður/Rafting

Já maður var með gráa fyðringinn og fór að taka áhættu í lífinu svona á gamals aldri. Adrenalínferðin 65020008 í vor var alger snilld og maður uppgötvaði hvað maður er virkilega lítill í sér þrátt fyrir orðróm um annað. Góður hópur, góð ferð, gott partý. Raftingið var líka mögnuð afmælisgjöf frá konunni minni og alveg ógeðslega gamann, sem og allur dagurinn var. Flúðirnar sjálfar voru nú ekkert mega en að stökkva fram af kletti í beljandi á var challenge og stemmingin var geggjuð. Svo var allt í rómantík og unaði um kvöldi. 

 

 

SP_A0093 Nr. 3 Rolling Stones á Parken

Þessi ferð var geðveik frá upphafi til enda og voru allir sem þar komu nærri ánægðir vona ég. Smá ælupest setti þó strik í minn reikning en henni var sópað undir teppi þegar átti að fara á Parken. Tónleikarnir voru hápunkturinn og hef ég fundið fyrir nýrri von um að ellinn sé ekkert svo slæm eftir að horfa á þessa "unglinga" í þolfimi. Hættuförinn á Norebro má líka teljast sem óvænt adrenalín ferð útaf  fyrir sig í boði tengda pabba sem hafði nú séð það svartara í Atlavík ´84.

 

 

Nr. 2 Sumarbústaður í Stóruskógum

Þetta var hreint geggjuð vika. Veðrið var svo gott að annaðeins hefur aðeins sést í Kenía. Til að sumarbustadur_storuskogar 064 auka enn á unaðinn voru Sverrir og Hrafnhildur í næsta bústað og ýmsir góðir gestir mættu á svæðið til þess að skemta okkur (sem þó erum bráðskemtileg fyrir) enn frekar. Gott ef ég fékk samt ekki líka ælupest hérna en það var nú bara normal og skemmdi lítið fyrir þessari alltof stuttu viku.

 

 

 

Picture 916 Nr.1 Brúðkaupið mikkla

Að sjálfsögðu trónir ein stærsta stund í mínu lífi á toppnum þrátt fyrir að stressið og geðveikinn sem  gekk á í aðdraganda hennar hafi verið gífurleg. Þessi dagur var æðislegur í alla staði. Draumakonan mín sagði já við mig á réttum stað og allir voru svo kátir og glaðir, allt sem kilkkaði var svo fyndið, veislan heppnaðist gríðalega vel (svo ég tali nú ekki um brúðkaupsnóttina ojojojojo..), og allir skemtu sér vel vona ég. Ég er afar þakklátur fyrir þennan dag og vil þakka öllum sem komu og glöddust með okkur og voru óhræddir við að láta eins og vitleysingar í veislunni.

Ekki slæmt ár í heildina litið og erfitt að gefa einkunn. Ég get nú hennt upp fimm mestu leiðindum ársins svona snöggt til yndisauka og jafnvægis so here goes...

4. Fluttningar, reyni að gera sem minnst af þeim á næsta ári.

3. AÞ Þrif, hef held ég aldrei unnið jafn leiðinnlega vinnu.

2. HR, helvítinn sviku mig all illilega í bakið eftir að halda mér í falskri von.

1. Veikindi, það er stefnt á veikindalaust  2008 eftir anna samt árí ár.

Ok fann bara fjögur, sem að er mjög gott. 

Jæja ágætis uppgjör og fólk ætti að sjá hvílík rússíbanareið líf mitt er með öllum sínum glamúr. Ég vill þakka spúsunum mínum tveimur fyrir að gera líf mitt svona skemmtilegt og vonandi hef ég náð að skemmta þeim eithvað smá. Kveikjann að þessu bloggi var samt að gera topp fimm lista yfir íslensku plötur ársins að mínu mati en það hefur tekið nokkra daga að gera þetta þannig að ég nenni því ekki núna.

Over and out for now. 


Við hestaheilsu

Já sæll.

Það er bæði hollt og gott að skrifa eithvað í dagbókina sína á hverjum degi, þannig fær maður dýpri skilning á eigin tilfinningum og sjálfi. Vona að þetta hafi hljómað gáfulega.

Ég verð nú að byrja á að hrósa Davíð fyrir snilldar sketsa á síðunni sinni sem að er linkuð hér til hliðar. Ég lá hérna í kasti yfir þessari snilld og spái honum frama á þessu sviði ef honum endist nenna til að halda þessu áfram. Stebbi á líka hrós skilið fyrir ljóðræna tilburði á sinni síðu sem að ég vissi ekki að leyndust í honum. Það er svo mikill sköpunnarkraftur í gangi að maður spyr sig hvort verði að stofna nýja listahreyfingu. Svo veit maður ekki hvort þetta er alveg mígandi sköpunnarkraftur eða bara alltof mikill frítími þeirra félaga :)

Ef einhver er góður í að ráða drauma þá dreymdi mig einn í nótt sem ég mundi vel eftir þegar ég vaknaði. Ég var út í sveit eithvað að vesenast að sækja einhvern hund og það var haugur af hestum og öðrum dýrum á svæðinu. Einn hestur, jarpur að lit (það er svona brúnn með svart fax og tagl fyrir þá sem ekki vita) var miklu stærri en allir hinir og fór að láta eithvað illa. Hann sparkaði út í loftið og náði mér hálfpartinn í rassgatið. Ég lét þetta nú lítið á mig fá og fór að tala við einhvern gaur sem þarna var. Þá mætti hesturinn á svæðið og reyndi að sparka í mig með öllum ráðum. Ég náði alltaf að komast undann og reyndi að róa hann niður en ekkert gekk. Svo fór ég með gaurnum eithvað að leita að hundinum og þá kemur folinn hlaupandi á eftir mér enn eina ferðina. Gaurinn segir eithvað um að hesturinn láti svona þegar að merinn hanns sé sofandi, eins og þetta sé ekkert stór mál. Aftur reynir hann að sparka í mig með öllum ráðum en nær mér aldrei og svo vaknaði ég bara óskaddaður. islenskur_hestur1_301003

Var að skoða einhvern draumráðninga vef sem sagði að jarpir hestar væru fyrir velgengni en ég trúi nú frekar ykkar draumráðningum kæru lesendur.

Djöfull hefði ég viljað vera á Led Zeppelin......... 


Blog um sama bullið og vanalega.

Þetta er alveg magnað. Ég var svo samviskusamur og lærði meira en ég hef gert nokkurn tíma fyrir stærðfræði próf sem ég átti að fara í á mánudaginn. Hver var svo orðinn veikur á sunnudagskveld? Auðvitað hann Þórður litli. Þannig að ég get ekki tekið prófin fyrr en í janúar og fæ bara staðið eða fallið, enga einkunn. Er orðinn frekar pirraður á þessu kjaftæði og nenni þessu ekki lengur.

Hlakka samt til að fá góðann matí góðra vinahópi næstu helgi, svo lengi semég hef ekki náð að smita Aðalheiði.

Ég er svangur....... 


Próf og hóf

Sælar

Í gærkveldi þegar ég var að fara að sofa áttaði ég mig á því að ég var farinn að hugsa í stærðfræði hugtökum. Já maður er að fara í próf. Stærðfræði á mánudag og maður er að reyna að læra. Gerði þau mistök að fara beint í rúmmið eftir að hafa setið yfir bókunum í staðinn fyrir að trappa mig niður með einhverju heiladrepandi sjónvarpsefni.

Kæruleysið gæti þó tekið völdin í kveld þar sem Kiddi tengdafaðir minn varð fimmtugur á miðvikudaginn og fær mínar hamingjuóskir með það. Það verða einhver veisluhöld með ýmsu boðlegu svo maður veit aldrei nema einhver heilaskaði verði við líði á morgun. 

Helga Nína er lasin og búinn að vera heima síðan á fimmtudag. Hún er samt últra hress að vanda verður í pössun hjá mömmu í nótt. Við fórum í frægðar för sl. laugardag að sjá Íþróttaálfinn í einhverri geðsýkislegri Hagkaupsverslun og Jólasveina tæta og trilla lýðinn í Kópavogi. Jólasveinar eru algerir snillingar og rokkstjörnur í eðli sínu þar sem þeir eru trilltir á sviði, ná góðu sambandi við áhorfendur og stjórnast algerlega af eðlishvötum. Mér þótti þeir ekki einu sinni svona skemtilegir þegar ég var lítill.

Baráttann um gott útsýni yfir Íþróttaálfinn var svo annað mál. Þar eru það foreldrarnir með sterkustu olnbogana sem ráða og að sjálfsögðu var ég látin heira það af einhverri dvergvaxinni móðir. Það er ekki í fyrsta skipti því við hjónin vorum látin heira það í Blómaval ekki fyrir löngu síðann þegar Tóta tannálfur var með áróðursfund.

Já þetta er frumskógur og foreldar er snar.

Varið nú dugleg að kommenta um hvað þið sakknið mín mikið þar sem að við sjáumst ekki né heyrumst fyr en eftir próf.

Sælar. 


Hugar hrörnun

Jæja litlu rassgötin mín nóvember_meira_2007 047

Það er nú langt síðan maður hefur látið gammin geysa hér á þessum glugga sálarinnar. Samt virðist ekkert vera að frétta, það er bara skóli og vinna og hressleiki að vanda. Tvær vikur eftir af skólanum og maður búinn að ráða sig Ríkið enn einu sinni. Já landanna vantar vín og það er víst best að ég beri ábyrgð á jóladrykkju þeirra.  nóvember_meira_2007 112

Við fórum nú í sumarbústaðaferð þar síðustu helgi og allir búnir að blogga um það og vita hvernig það fór fram. Er samt að spá í að skrá mig, Davíð, Sigga og Helga á framhalds Rokkabillí námskeið, því ég komst að því að við erum sko með grunnin í lagi.

nóvember_meira_2007 087

 Þetta er nú bara eithvað smá rugl til að friða hungraða aðdáendur mína, en ég er hræddur um að vera komin með heiladoða eða háminnistap því að það er búið að taka hálftíma að skrifa þessar línur, kanski er þetta bara rokksköddun.

brake down........ nóvember_meira_2007 093


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband